Þú ert hér

Heimilslegt andrúmsloft í sveitasælunni

Aðeins 10 km frá Akureyri má finna Ferðaþjónustuna Öngulsstöðum í kyrrlátu og notalegu umhverfi. Búið er að breyta fjósi í fallega gistiaðstöðu með uppábúnum rúmum og baðherbergjum. Morgunverðahlaðborð er borið fram í hlýlegum sal sem áður var hlaða, þar er m.a. er boðið upp á heimabakað góðgæti. Einnig er hægt að panta kvöldverð á staðnum og er lagt uppúr því að maturinn sé heimilislegur og hráefnið gott.


Í nágrenninu má finna margskonar afþreyingu, hestaferðir og íslenskt dýralíf má finna á næsta bæ auk þess sem margar fínar og léttar gönguleiðir eru á svæðinu.
Öngulsstaðir er kjörinn fyrir fólk sem vill vera í rólegheitum í sveitasælunni. Á staðnum er heitur pottur þar sem gestir geta hvílt sig eftir ferðalög dagsins og notið fallegs útsýnis yfir Eyjafjörðinn.

Yfir vetrartímann eru Öngulsstaðir frábær staður fyrir skíðafólk en á staðnum er geymsla fyrir skíði og búnað. Vel útbúinn fundarsal er að finna á eftri hæð hótelsins sem er tilvalinn fyrir fundi, litlar ráðstefnur og námsskeið. Veitingasalurinn á neðri hæðinni hentar vel undir ýmiskonar veislur og uppákomur.

Ferðaþjónustan Öngulsstöðum
601 Akureyri
www.ongulsstadir.is
hrefna@ongulsstadir.is

Um okkur

Þú ert hér: Forsíða or Um okkur

Aðgerðastika

Senda síðu Prenta síðu

Language

English